umsagnir

Umsögn BH um frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur

Nefndarsvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík

Reykjavík 28.janúar 2010


Umsögn Borgarahreyfingarinnar um frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur. Þingskj.118 – 112.mál


Borgarahreyfingin bauð sig fram til alþingiskosninga á vormánuðum 2009 og voru lýðræðismál ofarlega í hugum þess fólks sem þar fór fram. Eitt aðalstefnumál Borgarahreyfingarinnar í kosningabaráttunni var aukinn þáttur þjóðaratkvæðagreiðslna í málum sem varða þjóðarhag og telur BH að slíkt sé grundvallaratriði í þeirri uppbyggingu sem nú þarf að fara fram eftir að þjóðin hefur þurft að horfa upp á kerfi fulltrúalýðræðis hrynja eins og spilaborg. Þjóðin hefur hingað til ekki haft kost á því að hafa áhrif á einstök mál með þjóðaratkvæðagreiðslu sem varða þjóðarhag.

Eftir þau áföll sem þjóðin hefur mátt þola verður að teljast ánægjuefni að frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur skuli loksins koma fram og vill Borgarahreyfingin lýsa ánægju sinni með það. Hins vegar verður Borgarahreyfingin að gera nokkrar alvarlegar athugasemdir varðandi frumvarp forsætisráðherra og eru þær eftirfarandi.

Lesa meira Umsögn BH um frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur

 

Umsögn BH um frumvarp til breytinga á sveitastjórnarlögum

Nefndarsvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík

Reykjavík 20. janúar 2010


Umsögn Borgarahreyfingarinnar um frumvarp til laga um breytingu á sveitastjórnarlögum, nr 45/1998, með síðari breytingum. Þingskj.15 – 15.mál


Líkt og fram kemur er markmið þessa frumvarps að viðmið um fjölda sveitastjórnarfulltrúa á Íslandi verði færð til samræmis við það sem þekkist í nágrannalöndunum. Á heildina litið tekur Borgarahreyfingin undir þetta frumvarp en leggur þó áherslu á eftirfarandi atriði er málið varðar.

Borgarahreyfingin tekur undir þau rök sem fram koma í frumvarpinu að um lýðræðisskerðingu sé að ræða með núverandi fyrirkomulagi. Fyrir því liggja helst þau rök að 7% þröskuldur sá (þar sem hann er lægstur) er klífa verður til þess að komast til áhrifa í sveitastjórn er allt of hár þröskuldur til þess að almennir borgarar geti komist til áhrifa öðruvísi en að hafa öflugar flokksmaskínur að baki sér. Með fjölgun kjörinna fulltrúa myndi þröskuldurinn minnka og þar með auðvelda þátttöku borgaranna í ákvarðanatöku um eigin mál og mótun samfélagsins til framtíðar. Að þessu leyti er því um mikilvægt lýðræðismál að ræða sem umrætt frumvarp styrkir tvímælalaust.

Lesa meira Umsögn BH um frumvarp til breytinga á sveitastjórnarlögum

 

Umsögn BH um frumvarp til laga um stjórnlagaþing

Sendandi: Borgarahreyfingin
Dags. 7.12.2009
Þingskj. 168 -152.mál – Frumvarp til laga um stjórnlagaþing.
Umsögn Borgarahreyfingarinnar


Inngangur – almennt álit:


Fyrst er það til að taka að Borgarahreyfingin er ákaflega hlynnt stjórnlagaþingi og nýrri stjórnarskrá. Fáum dylst að núgildandi stjórnarskrá er algjörlega úr takti við tímann og á engan hátt boðleg sem grundvöllur lýðræðisríkis á 21. öldinni.
Afar mikilvægt er að vinna við nýja stjórnarskrá endurspegli þarfir og vilja þjóðarinnar og að eingöngu verði unnið með hagsmuni hennar og almennings að leiðarljósi en ekki stofnana, hagsmunasamtaka og stjórnmálaflokka. Því teljum við algjört skilyrði að stjórnlagaþing sé skipað óháðum fulltrúum þjóðarinnar og að aðkoma almennings sé sem mest og að skilyrðislaust sé unnið fyrir opnum tjöldum og upplýsingar aðgengilegar öllum landsmönnum.

Lesa meira Umsögn BH um frumvarp til laga um stjórnlagaþing

   

Umsögn BH um lög um persónukjör til sveitarstjórna - frh.

Umsögn frá Borgarahreyfingunni til allsherjarnefndar varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 – 103. mál. Viðbót við fyrri umsögn.

Borgarahreyfingin hefur áður sent inn umsögn (dags. 28. sept.) í tengslum við svipað frumvarp sem lagt var fram á sumarþinginu. Þar gerðum við helst athugasemdir við notkun orðsins “persónukjör” um listakosningu sem þessa og að gengið væri allt of skammt í átt að raunverulegu persónukjöri þar sem kjósendur gætu valið sér fulltrúa óháð stjórnmálaflokkum. Tæpast er ástæða til að endurtaka hér mikið af því sem fyrri umsögn okkar innihélt og vísum við til hennar, en þó hvetjum við háttvirta alþingismenn til að hafa í huga að fulltrúalýðræðið og umgjörð þess er til fyrir fólkið í landinu en ekki fyrir stjórnmálastéttina. Þó ber að fagna öllum skrefum í átt til aukins lýðræðis, hversu lítil sem þau eru.

Lesa meira Umsögn BH um lög um persónukjör til sveitarstjórna - frh.

 

Umsögn BH um lög um persónukjör til Alþingis - frh.

Umsögn frá Borgarahreyfingunni til allsherjarnefndar varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 – 102. mál.

Borgarahreyfingin hefur áður sent inn umsögn (dags. 28. sept.) í tengslum við svipað frumvarp sem lagt var fram á sumarþinginu. Þar gerðum við helst athugasemdir við notkun orðsins “persónukjör” um listakosningu og að gengið væri allt of skammt í átt að raunverulegu persónukjöri þar sem kjósendur gætu valið sér fulltrúa óháð stjórnmálaflokkum. Tæpast er ástæða til að endurtaka hér mikið af því sem fyrri umsögn okkar innihélt en þó hvetjum við háttvirta alþingismenn til að hafa í huga að fulltrúalýðræðið og umgjörð þess er til fyrir fólkið í landinu en ekki fyrir stjórnmálastéttina. Þó ber að fagna öllum skrefum í átt til aukins lýðræðis, hversu lítil sem þau eru.

Lesa meira Umsögn BH um lög um persónukjör til Alþingis - frh.

   

Síða 1 af 2