Tökum þátt í umræðunni...
Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir þá hefur útlit síðunnar tekið breytingum að undanförnu og má segja að frá og með deginum í dag verði hún í sífelldri þróun til betri vegar þannig að hún geti reynst áhugaverðari og aðgengilegri en nokkru sinni fyrr. Síðan hefur strax sýnt aukinn heimsóknarfjölda og er það von okkar allra að hún muni bara eflast í kjölfarið með virkri þátttöku þeirra sem heimsækja síðuna og taka þátt í umræðunni.
Hér á síðuna hafa verið teknir upp hlekkir á borð við "Spjallið" og "Greinar". Tilgangurinn með slíkum hlekkjum er að gera síðuna gagnvirkari en um leið málefnalegri. Með því móti hefur lesandinn beinan aðgang að síðunni og flestar skoðanir fá að njóta sín.
Undir hlekknum "Greinar" er lesendum gefinn kostur á að senda inn greinar sem áhugaverðar reynast og rúmast innan málefnasviðs BH. Oft á tíðum skrifar fólk góðar greinar í blöð og á bloggsíður og hvetjum við fólk til þess að senda þessar greinar á netfangið Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið svo fleiri fái að njóta hæfileika góðra penna. Gaman væri ef hægt væri að skapa ákveðinn kúltúr vefrits sem biði upp á regluleg greinarskrif í hverri viku.
Undir hlekknum "Spjallið" er saman kominn vettvangur fólks til þess að tjá sig um hin og þessi málefni sem brenna kunna á fólki. Segja má að þessi hlekkur komi í stað athugasemdakerfisins sem var á gömlu síðunni. Það er mikið af fólki í þjóðfélaginu sem tekur virkan þátt í umræðum á netinu og er það von BH að á spjallsvæðinu muni fólk eiga innihaldsríkar og um fram allt málefnalegar samræður um flest milli himins og jarðar.
Síðan er í sífelldri þróun og hvet ég fólk til að koma með ábendingar um hluti sem betur megi fara í umhverfi síðunnar.
Tökum höndum saman og virkjum heimasíðu BH á uppbyggjandi hátt öllum til hagsbóta !
F.h. Borgarahreyfingarinnar
Tryggvi Haraldsson
Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið