Tíundi kröfufundur NÍ og HH
Nýtt Ísland áætlar að vekja upp bankastjóra og stjórn Íslandsbanka n.k. laugardagsmorgun og minna á kröfu-og mótmælafund á Austurvelli. Þeir sem vilja fylgja vakningalestinni eftir er bent á að hittast fyrir utan Staldrið við Breiðholtsbraut kl 08:00 laugardagsmorguninn 13. febrúar.
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland standa fyrir 10. kröfufundi vetrarins á Austurvelli nk. laugard. 13 feb. kl. 15:00.
Nýtt Ísland hefur skorað á Birnu Einarsdóttir að mæta og útskýra úrræði bankans vegna stökkbreysts höfuðstóls bílalána á Austurvelli á laugardag. Ræðutími hennar miðast við 7 mínútur og hefst kröfu-og mótmælafundur kl: 15:00 stundvíslega 13. febrúar 2010.
Aukin ólga ríkir á vinnumarkaði, atvinnuleysið eykst og kannanir mæla sífellt þyngri neikvæð áhrif kreppunnar á heilsu og líðan landsmanna. Heimilum landsins er að blæða fjárhagslega út. Innan tíðar á að þvinga þúsundir fjölskyldna í nauðungarsöluferli og aðra þvingaða greiðsluerfiðleikasamninga.
Búast má við að um 44.500 heimili verði komin í verulega fjárhagslega þrönga stöðu fyrir árslok nema gripið verði til almennra leiðréttinga tafarlaust.
Hvar er varnarlína heimilanna Steingrímur?
Hvar er skjaldborgin Jóhanna? Hvers vegna eru starfsmenn bankanna á premíu við að hanna „ekki lausnir“ fyrir heimilin Gylfi og Árni Páll? Hvar eru réttarúrbæturnar fyrir lántaka og neytendur Ragna?
Ætla landsmenn að láta stjórnvöld, fjármálafyrirtæki og launþegahreyfinguna draga sig endalaust á asnaeyrunum? Það er ljóst að þessir aðilar eru ekki að gæta hagsmuna heimilanna. Er ekki komin tími til að fara sýna þeim hvort við ætlum að sætta okkur við gengdarlaust óréttlætið áfram?
Taktu afstöðu, segðu hingað og ekki lengra og taktu þátt í að breyta stöðunni með okkur, fyrir þig og þitt heimili. Við sættum okkur ekki við spillingu, valdníðslu og óréttlæti lengur.
Fjölmennum á Austurvöll og sýnum að okkur er ekki sama. Þín þátttaka skiptir miklu máli.
Samstaðan er okkar máttur !!!