Staðreyndir kosninganna 2009
Hagstofan hefur nú gefið út Hagtíðindi, en þar eru dregnar saman allar tölfræðiupplýsingar frá seinustu alþingiskosningum í apríl 2009.
Með hliðsjón af því að um fyrstu kosningar Borgarahreyfingarinnar var að ræða er fróðlegt að rýna í ýmsar tölfræðistaðreyndir okkur tengdum.
Borgarahreyfingin bauð sig fram í öllum kjördæmum og hlaut 13.519 atkvæði, 7,2 % fylgi og 4 þingmenn.
- Tölfræði er varðar frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar:
Alls fóru 126 aðilar í framboð undir merkjum Borgarahreyfingarinnar ( 61,2% karlar og 38,9% konur ).
Þegar skoðuð er skiptingin á sætum 1-3 er kynjahlutfallið mun jafnarar eða 55,6% karlar og 44,4% konur.
Borgarahreyfingin stóð sig vel hvað varðaði jafna skiptingu kynjanna í sætum 1-3 en þar var skiptingin 61,9% karlar og 38,1% konur þegar litið er til allra stjórnmálasamtaka sem buðu sig fram.Tekið skal fram að það framkallar ekki skiptinguna á þingmönnunum sem varð 57,1% karlar og 42,9% konur.
Meðalaldur frambjóðenda Borgarahreyfingarinnar var 40,4 ár (Karlar 39,4 ár og konur 42,1 ár).
Meðalaldur allra frambjóðenda á landinu (öll stjórnmálasamtök) var 44 ár og var Borgarahreyfingin því með lægstan meðalaldur frambjóðenda í kosningunum.
- Tölfræði varðandi úrslit kosninganna.
Kjörfylgi BH var nokkuð ójafnt eftir kjördæmum en það var:
3,3% (NV) 3,0%(NA) 5,1%(S) 9,1%(SV) 8,7%(RS) 9,6%RN)
Hagtíðindi í heild sinni má nálgast HÉR.