Skorað á Birnu Einarsdóttur

Borgarahreyfingin vill vekja athygli á eftirfarandi fréttatilkynningu frá Nýju Íslandi :

Nýtt Ísland skorar á Birnu Einarsdóttir að mæta og útskýra úrræði bankans vegna stökkbreyts höfuðstóls bílalána á Austurvelli á laugardag. Ræðutími hennar miðast við 7 mínútur og hefst kröfu-og mótmælafundur kl: 15:00 stundvíslega.

Birna Einarsdóttir bankastjóri og Ingvar Stefánsson hjá Íslandsbanka útskýrðu meðal annars eftirfarandi sem úrbætur vegna bílalána við forsvarsmenn samtakanna Nýtt Ísland og mótmælendur:

*  Hægt er að skila bíl eftir lánstíma, án frekara tjóns lántakenda.
*  Úrræði fyrirtækja v/bílalána er fyrirhuguð.
*  Hugsanleg ábyrgð bankans vegna ólögmætis myntkörfulána er mikið áhyggjuefni bankans.
*  Íslandsbanki gerir sér grein fyrir hugsanlegum skaðabótum bankans gegn lántakendum fari svo að myntkörfulánin verði dæmd ólögleg.

Birna Einarsdóttir bankastjóri sagði að í mörgum tilvikum væru lántakendum ekki útskýrð öll úrræði bankans. Hver ástæðan væri vitum við ekki.

Vakningalest Nýs Íslands vekur eftirfarandi aðila upp á laugardagsmorgun:

Birna Einarsdóttir.
Árni tómasson
Friðrik Sophusson
Martha Eiríksdóttir

Nýtt Ísland óskar eftir upplýsingum um dvalarstaði erlendra ríkisborgara sem eru í stjórn Íslandsbanka:

Neil Graeme Brown, breskur ríkisborgari.
John E. Mack, amerískur ríkisborgari.
Raymond J. Quinlan, amerískur ríkisborgari
Marianne Økland, norskur ríkisborgari.

Vinsamlega sendið á Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið