Landsmenn semji sína eigin stjórnarskrá

Það var líf og fjör í Húsinu í gærkvöldi þegar haldinn var opinn fundur um margboðað stjórnlagaþing. Mæting var góð og fylltust fundargestir miklum eldmóði við þær framsögur sem fluttar voru.

Fjórir frábærir frummælendur stigu á stokk og ræddu um stjórnlagaþing og stjórnarskrár, hver á sinn hátt.

Geir Guðmundsson, verkfræðingur og verkefnisstjóri er ekki maður sem farið hefur mikið fyrir í umræðunni en hefur engu að síður gengið með hugmyndir um stjórnlagaþing í kollinum í mörg ár. Hann flutti gríðarlega áhugaverða framsögu um stjórnkerfið og möguleikann á því að landsmenn sjálfir myndi með sér félag um sjálfsprottið stjórnlagaþing. Slík hugmyndafræði er þekkt innan stjórnmálafræðinnar og kallast „Deliberative democrazy“ eða „Umræðu lýðræði“. Þessar hugmyndir Geirs hlutu afar góðan hljómgrunn meðal fundargesta og var greinilegt að fólk hafði svipaðar hugmyndir í kollinum, með mismunandi útfærslum þó.

Á undanförnum vikum hafa stjórnarmenn í Borgarahreyfingunni fundað bæði með allsherjarnefnd Alþingis og nokkrum aðilum úr þjóðfélaginu þar sem ræddar hafa verið ólíkar hugmyndir um útfærslu á stjórnlagaþingi. Segja má að þar hafi orðið til kveikjan að fundinum sem haldinn var í gær. BH hefur frá stofnun barist fyrir stjórnlagaþingi með þátttöku almennings og finnst tími til kominn að taka málið skrefi lengra. Á fundinum var því komið á framfæri að BH hyggðist verja þeim kröftum og fjármunum sem hún hefði yfir að ráða til að hrinda af stað því verkefni að landsmenn sjálfir fái að semja sína eigin stjórnarskrá. Borgarahreyfingin var kosin í krafti loforða um lýðræðisumbætur og nú mun hún gera það sem í hennar valdi stendur til að efna þau loforð. Með því er BH ekki að eigna sér verkefnið heldur einbeitir sér að því að ryðja veginn fyrir þá sem leiða munu málefnastarf og umræðu ásamt fólki um allt land.

Hugmyndin er stór og enn á byrjunarstigi og því er ekki tímabært að fara nánar út í útfærsluatriði enda mun aðkoma fólks úr ýmsum áttum slípa hugmyndir eftir því sem fram vindur.

Borgarahreyfingin skorar á landsmenn að sýna málinu áhuga og vonast til að fólk fylki sér að baki þeirri vinnu sem nú verður hrundið af stað um land allt.