Kröfufundur á laugardaginn

Borgarahreyfingin minnir fólk á eftirfarandi :

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland vilja enn á ný boða til kröfufundar á Austurvelli næstkomandi laugardag kl. 15:00.  Mótmælt verður tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna.

Samtökin hafa nú þrýst á stjórnvöld um allangt skeið og gert tilraunir til að ná samvinnu með þeim til að leiðrétta stökkbreyttan höfuðstól lána og setja þak á frekara tjón, en stjórnvöld fría sig ábyrgð og hafa vísað málum til fjármálafyrirtækjanna. Nú er svo komið að bankarnir bjóða upp á
blekkingarleik, auglýsa leiðréttingar á höfuðstól sem síðan sannast að hafa í för með sér hærri vexti og í flestum tilfellum litlar sem engar leiðréttingar þegar á heildina er  litið.

Það er kominn tími til að stjórnvöld bregðist við kröfum samtakanna um réttlátar og sanngjarnar leiðréttingar, bremsu á frekara tjón og tímasetta áætlun um afnám verðtryggingar hið allra fyrsta.

Það gengur ekki lengur að hunsa kröfur fólksins í landinu , sérstaklega ekki í ljósi þess að á fundi HH með AGS kom fram að sjóðurinn telur afslætti á lánasöfnum bankanna eiga að ganga áfram að fullu til lántaka.