Kröfu og samstöðufundur, laugardag kl. 15
Borgarahreyfingin hvetur landsmenn til að mæta á kröfu-og samstöðufund á laugardaginn kl 15:00 á Austurvelli.
Kröfu-og mótmælafundir hafa verið haldnir í allan vetur af NÍ og Hagsmunasamtökum heimilanna og verða þeir haldnir þar til sanngjarnar leiðréttingar vegna stökkbreyts höfuðstóls lána hafa náð fram að ganga til fólksins í landinu.
Ræðumenn verða Þorvaldur Þorvaldsson og Gunnar Waage. Fundarstjóri verður Lúðvík Lúðvíksson Ní.
Að því loknu munu Magnús Guðmundsson tónlistarmaður rjúfa 25 ára tónlistarþögn sína. Magnús var í hljómsveitinni Þeyr en hún gerði það gott fyrir einhverjum árum. Magnúsi segist algjörlega misboðið og samdi því Drápu um ástandið á Íslandi af mikilli frásagnarsnilld sem hann mun væntanlega flytja á laugardaginn.
Kröfur fólksins eru að lán heimilanna og bílalán verði leiðrétt. Það sem fjármálastofnanir hafa boðið lántakendum eru aðeins sjónhverfingar og eru til þess fallin að henta lánastofnunum en ekki buguðum lántakendum í landinu.
Nú þurfa landsmenn að standa saman og mæta á Austurvöll til að þrýsta á stjórnvöld og fjármálastofnanir um að framkvæma leiðréttingar.