Heimildamyndasýningar Gagnauga

Gagnauga, hópur áhugafólks um alþjóða- og þjóðfélagsmál mun frá og með miðvikudagskvöldinu 10. febrúar bjóða upp á heimildamyndasýningar og verða sýndar myndir aðra hverja viku klukkan 20:00 í Húsinu, Höfðatúni 12.
 
Áhersla verður lögð á að sýna myndir sem vekja fólk til umhugsunar um sögu og samfélag, ögra og hrista aðeins í heimsmyndinni, kalla fram efasemdir um ríkjandi viðhorf og veruleika og kveikja áhuga og trú á betra og áhugaverðara lífi.
 
Eftirfarandi heimildamyndir hafa verið settar á dagskrá:
 
Miðvikudagur, 10. febrúar kl. 20:00
Architects of Control: Mass Control and the Future of Humanity


Myndin fjallar um þá þætti sem móta lífsviðhorf okkar og þær takmarkanir sem við óafvitandi setjum okkur. Vakin er athygli á hversu ginkeypt við erum fyrir hverskyns blekkingum og hvernig við festumst í veruleika sem neytendur í gerviveröld. Þessi mynd setur tilveru okkar í algjörlega nýtt samhengi, gerir okkur meðvituð um þær blekkingar sem leiða okkur í hversdagslegan þrældóm og vísar leiðina til sjálfseflingar og sjálfsvitundar.

Þeir sem sjá þessa mynd munu verða fyrir miklum áhrifum og verða almennt meðvitaðir um það hvernig við verðum fyrir áhrifum.

Miðvikudagur, 24. febrúar kl. 20:00
Vatnið
 
Stórmerkileg mynd um ótrúlega eiginleika vatnsins. Nýlegar vísindarannsóknir víða um heim gefa til kynna að vatnið hafi mjög fjölbreytta og áhugaverða eiginleika. Það hafi t.d. minni og skynji hugsanir og tilfinningar sem endurspeglast í krystalsbyggingu vatnssameindanna. Í vatninu mætast vísindi og trúarbrögð og veita okkur aðra sýn á lífið. Við erum minnt á að bæði lífverur og yfirborð jarðar er að mestu leiti vatn. Þetta vekur okkur til umhugsunar á mætti hugans og hvernig viðhorf fólks getur haft áhrif á umhverfið og náttúruna og hversu samtengd við erum í raun og veru.

Þetta er virkilega mynd sem hreyfir við fólki.


Miðvikudagur, 10. mars kl. 20:00
Fall of the Republic
 
Vönduð kvikmynd sem fjallar á skýran hátt um hnignun bandaríska heimsveldisins heima fyrir bæði á efnahags- og stjórnmálasviðinu. Sérstaklega er litið til forsetatíðar Baracks Obama og það harðsvíraða glæpagengi sem hann fer fyrir.
 

Mætum öll á fyrsta heimildamyndakvöldið, miðvikudagskvöldið 10.feb kl 20.