Góður fundur sl. fimmtudag
Síðastliðinn fimmtudag fór fram fjölmennur og góður fundur um banka og fjármálastofnanir í Húsinu að Höfðatúni 12.
Vilhjálmur Bjarnason og Sveinn Óskar Sigurðsson fluttu erindi og svöruðu spurningum að því loknu við góðar undirtektir fundargesta. Auk þeirra mættu fulltrúar þriggja hagsmunasamtaka lánþega á fundinn til þess að gera grein fyrir sinni baráttu og svara spurningum. Þau voru Guðmundur Andri Skúlason, Þórdís Sigurþórsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson. Auk þeirra mætti Friðrik Ó Friðriksson formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og svaraði spurningum fundargesta.
Á fundinn mættu hátt í 60 manns sem skiptust á sögum og ræddu málin lengi og vel að fundinum loknum.
Fundurinn var tekinn upp og mun verða settur hingað inn á heimasíðuna við allra fyrsta tækifæri. Stefna okkar er sú að taka megi upp svona fundi í framtíðinni og setja inn á heimasíðuna svo sem flestir geti notið annað hvort í formi hljóð"fæla" eða mynd"fæla".
Borgarahreyfingin vonar að svona fundir verði undanfarar vitundarvakningar fólks og stuðli að samstöðu hópa sem standa í svipaðri baráttu.