Bílalánamótmæli, þriðjudag kl 12:15 !

Borgarahreyfingin vill hvetja alla til að sýna samstöðu og mæta fyrir utan Íslandsbanka á morgun, þriðjudag kl 12:15 !

Við söfnumst saman kl 12:15 hjá Íslandsbanka Kirkjusandi. Við flautum í 3 mínútur hið minnsta.

Við breytum um takt og mótmælum aðeins hjá einni fjármagnsstofnun í hverri viku hér eftir.
 
Það sem Íslandsbanki er að bjóða er aðeins sjónhverfing, aðeins er verið að lengja í hengingaról skuldsettra einstaklinga og fjölskyldna sem tóku bílalán hjá ónýtu bankakerfi á Íslandi.

Nýtt Ísland hefur ákveðið að veita nýrri stjórn Íslandsbanka þar sem nokkrir erlendir aðilar sitja í rauða spjaldið á þriðjudaginn. Á rauða spjaldinu verður lagt til tilboð til handa Íslandsbanka um betri úrræði.

Samtökin Nýtt Ísland óska eftir að bankstjórinn Birna Einarsdóttir ásamt nýkjörnum stjórnarformanni Íslandsbanka Friðrik Sophusson veiti tilboðinu formlega móttöku kl 12:22 á bílastæði Íslandsbanka Kirkjusandi.

Við hvetjum alla til að mæta og mótmæla óréttlætinu sem bíla lántakendur búa við. Gæðingar og valinkunnir aðilar sem ryksugu bankana að innan. Merkilegt að sömu aðilar er að takast að afhenda fólkinu í landinu skuldirnar.