Áttundi kröfufundurinn - mætum öll !
Borgarahreyfingin vill minna fólk á áttunda kröfu- og mótmælafund Nýs Íslands og Hagsmunasamtaka heimilanna - Stöndum upp úr sófanum og sameinumst gegn því hrikalega óréttlæti sem hér viðgengst !
Áttundi kröfufundur Nýs Íslands og Hagsmunasamtaka heimilanna verður á Austurvelli laugardaginn 23. janúar kl. 15,
Spillinguna burt !
Ræðumenn verða Jóhannes Björn Lúðvíksson höfundur bókarinnar, Falið vald. Frá Hagsmunasamtökum heimilanna kemur Atli Steinn Guðmundsson, ungur fjölskyldufaðir sem hefur ákveðið að flytjast frá landinu með fjölskyldu sína vegna ástandsins og aðgerðarleysis stjórnvalda. Það tók ekki nema 15 mínútur að bjarga fjármagnseigendum í hruninu - Fólkið sem byggir landið var skilið eftir með stökkbreyttan höfuðstól lána og óréttlætið heldur áfram.
Mætum öll og tryggjum þjóðinni sem byggir landið réttlæti.
Nýtt Ísland skorar á alþingismenn, ríkisstjórn og fjármagnsstofnanir að hlutskipti fólksins verði ekki bara að erfa skuldir útrásarvíkinga og tengdra aðila. Því vilja samtökin Nýtt Ísland bjóða þeim að koma með ný úrræði og leiðréttingar fyrir skuldsettar fjölskyldur.
Það má óttast að upp úr sjóði í þjóðfélaginu verði ekki kröfum fólksins í landinu mætt. Samtökin Nýtt Ísland lýsa yfir miklu ábyrgðarleysi stjórnvalda og ábyrgðarleysi allra þingmanna við að koma Íslandi úr ógöngum ófaglegrar stjórnunar við rekstur ríkisins eftir hrun. Landið er nær stjórnlaust og eignir fjölskyldna brenna upp, lánin hækka m.a. vegna stjórnleysis á Íslandi. Verði engin ný úrræði og/eða ný útspil ofangreindra aðila til leiðréttingar fyrir lántakendur munu samtökin herða mótmæli og kalla eftir frekari aðgerðum frá þjóðinni sem byggir þetta land.