tilkynningar

Stjórnarfundur 23.feb. kl.18

Stjórnarfundur BH þriðjudaginn 23.febrúar kl 18:00

Dagskrá:

• Fjármál Borgarahreyfingarinnar.
• Mál endurskoðunar og ógreiddra reikninga.
• Önnur mál.

Fundurinn hefst kl 18 !
Mætum tímanlega!

 

Fundur í kvöld ! - Mótmæli á laugardag !

Borgarahreyfingin vill hvetja fólk til að mæta á fund í Iðnó á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna í kvöld ! Svo þykir okkur rétt að minna á þrettánda kröfufund Nýs Íslands niðri á Austurvelli kl. 15 á laugardaginn.

Yfirskrift fundar Hagsmunasamtaka heimilanna er : HINGAÐ OG EKKI LENGRA

Fundurinn hefst kl 20 í Iðnó

Lesa meira Fundur í kvöld ! - Mótmæli á laugardag !

 

Bílalánamótmæli á morgun, þriðjudag!

Borgarahreyfingin vill hvetja fólk til að fylgja eftir góðri mætingu á laugardaginn og fylkja liði fyrir framan Íslandsbanka kl 12:15 á morgun, þriðjudag.

Um leið birtum við tilkynningu Nýs Íslands þessa efnis:

Við söfnumst saman fyrir framan Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 þriðjdaginn 15. febrúar. Við mótmælum óréttlátum bílasamningum og flautum í 3 mínútur hið minnsta, þ.e.a.s. ef gagn-tilboði NÍ verður hafnað af Íslandsbanka.

Aðeins verður mótmælt hjá Íslandsbanka, þriðjudag 15. febrúar !
 
Það sem Íslandsbanki er að bjóða, er  sjónhverfing, aðeins er verið að lengja í hengingaról skuldsettra einstaklinga og fjölskyldna sem tóku bílasamninga hjá ónýtu bankakerfi á Íslandi.

Fyrir helgi var lántakenda dæmdur sigur í máli gegn Lýsingu Fjármögnun sjá hér. http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=E200907206&Domur=2&type=1&Serial=1&Words=   
 

Lesa meira Bílalánamótmæli á morgun, þriðjudag!

   

Tíundi kröfufundur NÍ og HH

Nýtt Ísland áætlar að vekja upp bankastjóra og stjórn Íslandsbanka n.k. laugardagsmorgun og minna á kröfu-og mótmælafund á Austurvelli.  Þeir sem vilja fylgja vakningalestinni eftir er bent á að hittast fyrir utan Staldrið við Breiðholtsbraut kl 08:00 laugardagsmorguninn 13. febrúar.

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland standa fyrir 10. kröfufundi vetrarins á Austurvelli nk. laugard. 13 feb. kl. 15:00.

Nýtt Ísland hefur skorað á Birnu Einarsdóttir að mæta og útskýra úrræði bankans vegna stökkbreysts höfuðstóls bílalána á Austurvelli á laugardag.   Ræðutími hennar miðast við 7 mínútur og hefst kröfu-og mótmælafundur kl: 15:00 stundvíslega 13. febrúar 2010.

Lesa meira Tíundi kröfufundur NÍ og HH

 

Frábært heimildamyndakvöld

Þeir voru greinilega ekki að fara af stað með sitt fyrsta heimildamyndakvöld, strákarnir í Gagnauga (hóps áhugafólks um alþjóða- og þjóðfélagsmál) þegar myndin Architects of Control: Mass Control and the Future of Mankind var sýnd við góðar undirtektir í Húsinu að Höfðatúni 12 í gærkvöldi. Valið á myndinni átti svo sannarlega erindi við almenning á Íslandi í dag og sátu þeir 27 gestir sem sýninguna sóttu agndofa í tvo og hálfan tíma.

Krítik:

Myndin var í senn áhrifarík og virkilega útpæld með góðum skírskotunum til kvikmyndasögunnar sem auðveldaði áhorfendum að vinna sig í gegnum myndina og boðskap hennar.

Góð mæting og virkilega gott fyrsta kvöld heimildamyndasýninga Gagnauga sem halda munu áfram að tveimur vikum liðnum (24.febrúar) með annarri og kannski ennþá betri heimildamynd.

   

Síða 6 af 12