tilkynningar

Fall of the Republic á miðvikudag

Gagnauga, hópur áhugafólks um alþjóða- og þjóðfélagsmál mun bjóða upp á heimildamyndasýningar aðra hverja viku í Húsinu að Höfðatúni 12.

Áhersla verður lögð á að sýna myndir sem vekja fólk til umhugsunar um sögu og samfélag, ögra og hrista aðeins í heimsmyndinni, kalla fram efasemdir um ríkjandi viðhorf og veruleika og kveikja áhuga og trú á betra og áhugaverðara lífi.
 
Eftirfarandi heimildamynd verður sýnd miðvikudaginn 10.mars kl 20:

Fall of the Republic
 
Vönduð mynd sem fjallar á skýran hátt um hnignun bandaríska heimsveldisins, bæði á efnahags- og stjórnmálasviðinu. Sérstaklega er litið til forsetatíðar Baracks Obama.

Mætum öll og sjáum þessa gæðamynd á miðvikudaginn og tökum vini og vandamenn með í Húsið.

 

 

Gefur Ísland skýr skilaboð á morgun ?

Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að gengið verður að kjörborðunum á morgun, laugardag til þess að útkljá mál í þjóðaratkvæði í fyrsta skipti frá stofnun lýðveldisins. Hingað til landsins er mættur aragrúi fjölmiðlamanna frá erlendum ríkjum til þess að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni og er hún talin hafa gríðarlegt táknrænt gildi í lýðræðislegu samhengi.

Forsætisráðherran hefur gefið í skyn að hún ætli að sitja heima á kjördag og rökstyður hún ákvörðun sína á þann hátt að atkvæðagreiðslan sé úrelt þar sem betri samningur liggi svo gott sem á borðinu. Vissulega má vera sammála því en það breytir ekki staðreynd málsins um hið táknræna gildi atkvæðagreiðslunnar. Skilaboðin sem Ísland getur sent út í hinn vestræna heim á laugardaginn með því að sýna ótvíræðan hug sinn og áhuga á lýðræðislegum vinnubrögðum getur orðið sterkasta landkynning Íslands í mjög langan tíma.

Lesa meira Gefur Ísland skýr skilaboð á morgun ?

 

Staðreyndir kosninganna 2009

Hagstofan hefur nú gefið út Hagtíðindi, en þar eru dregnar saman allar tölfræðiupplýsingar frá seinustu alþingiskosningum í apríl 2009.

Með hliðsjón af því að um fyrstu kosningar Borgarahreyfingarinnar var að ræða er fróðlegt að rýna í ýmsar tölfræðistaðreyndir okkur tengdum.

Borgarahreyfingin bauð sig fram í öllum kjördæmum og hlaut 13.519 atkvæði, 7,2 % fylgi og 4 þingmenn.

  • Tölfræði er varðar frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar:

Alls fóru 126 aðilar í framboð undir merkjum Borgarahreyfingarinnar ( 61,2% karlar og 38,9% konur ).

Þegar skoðuð er skiptingin á sætum 1-3 er kynjahlutfallið mun jafnarar eða 55,6% karlar og 44,4% konur.

Borgarahreyfingin stóð sig vel hvað varðaði jafna skiptingu kynjanna í sætum 1-3 en þar var skiptingin 61,9% karlar og 38,1% konur þegar litið er til allra stjórnmálasamtaka sem buðu sig fram.Tekið skal fram að það framkallar ekki skiptinguna á þingmönnunum sem varð 57,1% karlar og 42,9% konur.

Lesa meira Staðreyndir kosninganna 2009

   

Frekari upplýsingar frá samstöðuþinginu.

Á laugardaginn fór fram mjög vel heppnað upplýsinga og samstöðuþing í Iðnó sem gaf frá sér ályktun sem birtist hér á síðunni í gær og má nálgast HÉR.

Á þinginu voru flutt mjög brýn erindi ólíkra aðila sem svo sannarlega áttu erindi við fleiri en gesti þingsins. Guðmundur Andri Skúlason, talsmaður Samtaka lánþega var í viðtali við morgunútvarp Bylgjunnar, "Í bítið" í gærmorgun þar sem hann fór yfir efni þingsins og aðgerðir sem mögulegar væru fyrir lánþega sem ættu í greiðsluerfiðleikum.

Fyrir áhugasama má nálgast viðtalið HÉR en það byrjar eftir 56 mín og 55 sekúndur af upptökunni. 

 

Kirkjusandur kl 12:15 í dag !

Borgarahreyfingin minnir á það að nú er runninn upp þriðjudagur, sem þýðir bara eitt :

Boðað er til bílalánamótmæla fyrir utan Íslandsbanka við Kirkjusand kl 12:15 í dag, þriðjudag.

Í ljósi þess að úrræði þau sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taldi að gæti gengið til heimila landsmanna og bankinn hundsi, segjum við hér með Birnu Einarsdóttir bankastjóra upp störfum fyrir hönd Nýja Íslands. Uppsagnarbréfið verður afhent við Kirkjusand kl 12:15 í dag, þriðjudag.
 

   

Síða 4 af 12