tilkynningar

Kröfufundur á Austurvelli, laugardag kl 15 !

Borgarahreyfingin vekur athygli fólks á eftirfarandi tilkynningu og hvetur fólk að sjálfsögðu til að fjölmenna :

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland hvetja fólk enn á ný til að fjölmenna á Austurvöll á laugardaginn 16. janúar kl. 15 þar sem Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi frá Akranesi og Guðrún Dadda Ásmundardóttir, stjórnarkona í HH munu taka til máls auk Birkis Högnasonar formanni ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands.

Nýtt Ísland skorar á alþingismenn að mæta á Austurvöll á laugardag til að reyna að öðlast skilning á kröfum þeirra sem byggja þetta land. Ákveðið hefur verið að vekja alla alþingismenn upp á laugardagsmorgun með því að heimsækja þá og minna þá á kröfufundinn og kröfur fólksins í landinu.

Lesa meira Kröfufundur á Austurvelli, laugardag kl 15 !

 

Tilkynning til félagsmanna

Stjórn Borgarahreyfingarinnar vill koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri við félagsmenn :

Félagsfundi þeim er fara átti fram fimmtudaginn 14.janúar hefur verið aflýst/frestað.

Ástæða þess er sú að fyrirhugað er að halda stóran félagsfund í upphafi febrúarmánaðar og taldi stjórnin ekki grundvöll fyrir tveimur félagsfundum með svo stuttu millibili.

Félagsfundurinn í upphafi febrúarmánaðar mun verða tileinkaður rannsóknarskýrslu Alþingis og viðbragða við henni.

Sá fundur verður auglýstur nánar þegar nær dregur.

 

Stjórnarfundur þriðjudaginn 12.jan. kl 18:00

Dagskrá:

  • Verkaskipting stjórnar - frh.
  • Félagsfundur 14.jan. og í byjun feb.
  • Sveitastjórnarmál BH -  staðan.
  • Merking Hússins
  • Önnur mál

Athugið nýja tímasetningu kl 18:00 !

Mætum tímanlega !

   

Kaffistofuspjall - Maður er manns gaman

Saknar þú félagsskaparins sem fylgir því að sækja vinnu á hverjum degi....eða hefur bara gaman af að hitta annað fólk og ræða málin ?

Alla þriðjudaga og fimmtudaga milli kl 9 og 11 hittist hópur fólks og ræðir allt milli himins og jarðar yfir kaffibolla í góðum félagsskap hvors annars. Þannig sköpum við skemmtilegt félagsnet ólíkra einstaklinga í svipuðum sporum.

Lesa meira Kaffistofuspjall - Maður er manns gaman

 

Bílamótmæli þriðjudaginn 12.jan. kl 12, Íslandsbanka Kirkjusandi

Borgarahreyfingin vekur athygli á eftirfarandi tilkynningu og hvetur fólk til að sína samstöðu kl 12 á morgun, þriðjudag :

Samtökin Nýtt Ísland skipuleggja friðsamleg mótmæli fyrir utan bílalána fyrirtækin alla þriðjudaga í vetur. Við mætum á bílunum "okkar" og flautum í 3 mínútur fyrir utan hvert lánafyrirtæki.

Bílamótmælin byrja, þriðjudaginn 12. janúar 2010,  kl: 12:00 hjá Íslandsbanka Kirkjusandi. Bílalestin fer síðan að höfuðstöðvum SP Fjármögnunar að Sigtúni 42, þaðan ökum við að Avant á Suðurlandsbraut. Tryggingamiðstöðin Síðumúla verður heimsótt, loks Lýsing  í Ármúla  og við endum á hjá Frjálsa Fjárfestingabankanum í Lágmúla. Flautað verður stanslaust í 3 mínútur fyrir utan hvert fyrirtæki.  Aðgerðir eru boðaðar alla þriðjudaga kl 12:00 eða þar til réttlátum leiðréttingum vegna höfuðstólshækkunar bílasamninga bílalánafyrirtækjanna gagnvart lántakendum verður mætt. Munið að hlaða rafgeymana.

Lesa meira Bílamótmæli þriðjudaginn 12.jan. kl 12, Íslandsbanka Kirkjusandi

   

Síða 11 af 12