Stjórnarfundur, 15.desember 2009
Fundargerð stjórnar BH þriðjud. 15.12.09 kl. 17.30 í Höfðatúni 12.
Mætt voru: Ásthildur, Björg, Ingólfur, Gunnar Sig, Heiða, Sigurður, Inga, Bjarki (á Skype), Lilja (á Skype) og Tryggvi (ritaði fund)
1. Fjárframlög ríkisins og áætlun varðandi þau.
2. Fundur með öðrum hreyfingum – áherslupunktar.
3. Kynning Hússins – tímasetning og leiðir.
4. Önnur mál.
1. Farið var yfir skuldastöðuna og föst útgjöld næsta árs. Fyrir fjárlaganefnd liggur fyrir tillaga um 10% skerðingu á fjárframlögum til stjórnmálaflokka. Samhljómur var um að fagna hverslags skerðingu á fjárframlögum til stjórnmálaflokka af slíku tagi. Rætt var um hugmyndina um að stofna styrktarsjóð með öðrum eftir áramót þar sem ákveðinni fjárhæð á mánuði yrði varið í góðgerðarmál. Samhljómur var um að borga allar skuldir um leið og fjárframlagið fengist afgreitt í janúar. Upp kom hugmynd um að skora á aðra stjórnmálaflokka þegar fjárframlög lægju fyrir (t.d. að allir gæfu 10% til góðgerðarmálefnis) en sú hugmynd verður betur útfærð í janúar.
2. Heiða, Inga, Siggi og Björg (ásamt Tryggva) ætla að sitja fund með fulltrúum aðgerðarsamtaka í hádeginum 16.des. Tilgangurinn að sameina krafta, fá að vita hver þeirra markmið séu og öfugt. Einnig að bjóða fram krafta okkar í formi þátttöku, kynningar og húsnæðislega – sameining er mikilvægt afl í því sem koma skal.
3. Hér gerði Tryggvi grein fyrir þeirri vinnu sem framundan væri í kynningu á Húsinu. Fengið var á hreint hans umboð til að setja inn tilkynningar og að senda út auglýsingar á heimasíðu og til félagsmanna. Byrja á að kynna Húsið fyrir innviðinu og þannig smitast það út fyrir hópinn. Tekin var ákvörðun um að nota nýja heimasíðu markvisst til kynningar á öllu því sem fram fer í Húsinu, fundum og öðru.
4. Önnur mál:
Heimasíðan: Fólk var sammála Tryggva um að útlit nýju heimasíðunnar væri ábótavant og Tryggvi fékk umboð til þess að vinna áfram í nýju útliti og þróun síðunnar. Svo kæmi fólk með athugasemdir (til hans) ef því mislíkaði eitthvað af þeim breytingum sem unnið verður með á næstunni.
Mál flóttamannsins: Borgarahreyfingin hefur verið í sambandi við hans tengilið og heldur áfram að hjálpa henni í þeirri baráttu við að finna lögfræðiaðstoð.
Samþykktir: Samþykktir frá síðasta landsfundi voru undirritaðar og Tryggva falið að koma þeim til fyrirtækjaskráar til uppfærslu.
Breyting á stjórn BH: Björg Sigurðardóttir var tekin inn í stjórn Borgarahreyfingarinnar eftir að Guðmundur Andri Skúlason hafði sagt stöðu sinni lausri.
Fundi lauk kl 18:50 – næsti fundur áætlaður 5.janúar 2010.