Stjórnarfundur, 1. desember 2009
Fundur stjórnar Borgarahreyfingarinnar, þriðjud. 1.12.2009 kl. 17.30 Mætt voru Tryggvi. (ritaði fund), Gunnar Sig., Björg, Ingólfur (fyrir Valgeir), Ingifríður, Guðmundur Andri, Birgir, Bjarki (á Skype) og Lilja (á Skype). Dagskrá:
1. Opnun hússins
2. Önnur mál.
1. Húsið opnað laugardaginn 5.des. Opið hús milli 13-17. Mótmælafundur verður á Austurvelli og húsið verður opið fyrir og eftir það. Boðið upp á vöfflur og kakó. Fólki velkomið að koma með bakkelsi. Opnunin verður auglýst á Austurvelli, með fréttatilkynningu til fjölmiðla, á facebook og á heimasíðu auk fjöldapósts til félagsmanna. Tryggvi býr til auglýsingu og Inga sendir fjöldapóst. Gunnar kemur með gos. Björg kaupir hlutina. Tryggvi skrifar fréttatilkynningu og auglýsingu. Siggi reddar hljóðkerfi og vöfflujárni. Mikilvægt að allir mæti á laugardaginn sem geta.
2. Önnur mál
a. Almennt rætt um mótmælaaðgerðir. Hvað virkar og hvað ekki? Rætt um að bjóða fólki sem er í verulegum vandræðum að koma í húsið. Fólk hefur enga rödd nema sameinast. Gera hlutina félagslega, fólk þarf að fá eitthvað út úr því að mótmæla. Fundi slitið kl. 19.00.