Stjórnarfundur, 26.janúar 2010
Fundargerð stjórnar BH þriðjud. 26.1.10, kl. 18.00 að Höfðatúni 12.
Mætt voru: Ásta, Gunnar, Örn, Björg, Jón Kr., Heiða, Sigurður, Inga, Lilja, Ingólfur (í ca. 1klst), Bjarki (á skype hluta af fundi) og Tryggvi (ritaði fund).
1. Björk Sigurgeirs á Skype.
2. Verkaskipting stjórnar - frh.
3. Nýtt fyrirkomulag stjórnar og stjórnarfunda.
4. Framtíðarhugmyndir Sigga Hr.
5. Sveitastjórnarmál
6. Félagsfundur 4.feb. – ný staða.
7. Aðalfundur RÚV
8. Önnur mál.
1. Fundurinn byrjaði á Skypesambandi við Björk Sigurgeirsdóttur á Egilsstöðum en hún situr í nefnd fyrir hönd BH um erlenda fjárfestingu. Hún gerði stjórninni grein fyrir stöðunni sem uppi væri varðandi Magma Energi og ákvað fundurinn að Siggi myndi nota sín sambönd við þekkingu á lagaumhverfi Evrópu til þess að hjálpa til við vinnu nefndarinnar.
2. Farið var yfir stöðuna – ekki náðist að skrifa undir stjórnarbreytingu.
3. Tillaga Heiðu varðandi starfandi framkvæmdastjórn þriggja einstaklinga var samþykkt. Siggi, Inga og Heiða gáfu kost á sér í hana. Rætt var um að stjórnin hittist á hefðbundnum stjórnarfundum aðra hverja viku. Framkvæmdastjórnin hittist einu sinni í viku á hádegisfundum og tekur ákvarðanir í umboði stjórnar. Umræða skapaðist um valdsvið og umboð framkv.stjórnar en framkvæmdastjóri fundar alltaf með framkv.stjórn. Tryggvi tók að sér að útbúa ramma utan um vinnulag framkvæmdastjórnar og tilgang breytingarinnar.
4. Siggi viðraði sín sjónarmið varðandi framtíðaráform BH og hlutu þau áform góðan hljómgrunn. Siggi og Gunnar Sig.tóku að sér að halda áfram þeirri vinnu.
5. Umræða skapaðist um sveitastjórnarmál BH og féllst stjórnin á að setja þau mál í biðstöðu eins og staðan væri í dag. Almennar umræður sköpuðust um borgarmál og fólk skiptist á skoðunum varðandi þau framboð sem komin væru fram og hugsanlegt framboð í nafni BH.
6. Ráðgert var að félagsfundur yrði haldinn 4.feb þar sem aðalumræðuefnið yrði skýrsla rannsóknarnefndar. Tekin var ákvörðun um að breyta áherslum fundarins í kjölfar þeirrar seinkunar sem verður á birtingu skýrslunnar. Ákveðið var að beina sjónum félagsfundarins að málefnum bankanna og því sukki sem þar hefði farið fram eftir hrun. Tryggvi fékk nokkur nöfn upp í hendurnar og tók að sér að hafa samband við aðila sem hugsanlega gætu komið á fundinn.
7. Stutt umræða þar sem Siggi greindi frá þeirri fyrirætlan sinni að mæta á aðalfund RÚV. Hann fékk fullt samþykki stjórnarmanna til að fara þangað í nafni BH.
8. Önnur mál:
Ekki gafst tími til frekari umræðna og verða þeir dagskrárliðir sem út af stóðu settir á dagskrá næsta fundar.
Fundi lauk kl 19:30