ályktanir

Metnaðarlausir fréttamiðlar

Borgarahreyfingin lýsir yfir furðu og áhyggjum vegna metnaðarleysis margra íslenskra fréttamiðla og skorts á rannsóknarblaðamennsku.

Í kjölfar útkomu Rannsóknarskýrslunnar hefðu fjölmiðlarnir átt að fara í naflaskoðun og berja í brestina eftir góðærismeðvirkni og almennan sofandahátt. Enn sem komið er bólar þó lítið á sjálfsgagnrýni og breytingum til batnaðar. Flestir fréttamiðlar eru lítið annað en endurvarp háværra sérhagsmunahópa og misviturra álitsgjafa. Magn er ekki það sama og gæði.

Sú óskiljanlega ákvörðun fréttastjóra RÚV að láta einn hæfasta liðsmann stofnunarinnar, Kristinn Hrafnsson, taka pokann sinn á tímum sem þessum er aðför að lýðræðinu í landinu. Réttar og óháðar upplýsingar verða að vera grundvöllur umræðu og forsenda þess að almenningur geti áttað sig á stöðu mála. Ríkar kröfur eru gerðar til fjölmiðils í opinberri eigu sem ætla má að almenningur beri traust til að miðli nákvæmum og óbrengluðum upplýsingum. Þvi miður virðast stjórnendur RÚV ekki vera starfi sínu vaxnir og forgangsraða á rangan hátt þegar hæfasta fólkinu er vísað á dyr en meðalmennskan fær að ráða ríkjum.

Lesa meira Metnaðarlausir fréttamiðlar

 

Vegna tilmæla FME og SÍ um vexti af gengistryggðum lánum

Í ljósi tilmæla FME og Seðlabankans um vexti af ólöglegum gengistryggðum lánum vill Borgarahreyfingin koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri:


Þau fjármálafyrirtæki sem hafa á undanförnum árum boðið viðskiptavinum sínum íslensk lán bundin gengi erlendra gjaldmiðla hafa samkvæmt nýgengnum dómi Hæstaréttar brotið gegn lögum um vexti og verðbætur frá árinu 2001. Af því leiðir að umræddir lántakendur hafa verið krafnir um greiðslur langt umfram það sem lögmætur hluti lánasamninganna segir til um og í sumum tilfellum verið sviptir eigum sínum á ólögmætum forsendum.

Það væri fullkomlega óásættanlegt og vafalaust ólöglegt ef sömu fyrirtæki breyttu einhliða vaxtaákvæðum samninganna sér í hag til að koma í veg fyrir að fjárhagsstaða þeirra versni sökum eigin brota. Ábyrgð eftirlitsstofnana er einnig mikil í þessu máli og því er holur hljómur í tilmælum þeirra nú, sem ekki byggja á traustum lagalegum grunni.

BH skorar á yfirvöld að standa með brotaþolum, sem í þessu tilfelli eru lántakendur og neytendur, með takmarkaða burði til að berjast við harðsvíraða sveit lögfræðinga fjármálafyrirtækjanna. Eðlilegast væri að fresta afborgunum af öllum gengistryggðum lánum þangað til dómstólar hafa gefið út úrskurð um vaxtaákvæði samninganna byggðan á gildandi lögum.

BH skorar á neytendur og talsmenn þeirra að standa saman og láta ekki bjóða sér yfirgang og lögleysu. Nóg hefur almenningur þurft að sætta sig við fram að þessu. Að mati BH er refsivert athæfi að gefa út reikning án lögmætrar kröfu og slíkt ber að kæra til lögreglunnar.

Lesa meira Vegna tilmæla FME og SÍ um vexti af gengistryggðum lánum

 

Tilmæli til skrifstofustjóra og forseta Alþingis

Stjórn Borgarahreyfingarinnar telur að skrifstofustjóri Alþingis ætti alvarlega að hugsa sinn gang vegna ákærunnar gegn 9 mótmælendum og framferði þeirra á þingpöllum í desember 2008.

Umfjöllun í Kastljósinu þann 20. maí sýndi og sannaði að sumar fullyrðingar í ákærunni eru fjarri raunveruleikanum og standast ekki skoðun. Það er Alþingi til háborinnar skammar. Tiltrú almennings á stofnuninni er afar lítil og tæpast verður þetta til að bæta úr því.

Við hvetjum bæði skrifstofustjóra Alþingis og forseta Alþingis til að viðurkenna rangfærslur opinberlega og biðjast afsökunar.

Stjórn BH.

(Tölvupóstur frá skrifstofustjóra Alþingis fylgir hér á eftir með leyfi hans)

Lesa meira Tilmæli til skrifstofustjóra og forseta Alþingis

   

Borgarahreyfingin mótmælir stefnubreytingu í orku- og auðlindamálum bak við tjöldin án lýðræðislegrar umræðu

Vegna frétta af fyrirhuguðum kaupum kanadíska athafnamannsins Ross Beaty og fyrirtækis hans, Magma Energy, vill Borgarahreyfingin koma eftirfarandi á framfæri:

Fulltrúi BH í nefnd um erlenda fjárfestingu leitaði til eins helsta Evrópuréttarsérfræðings landsins til að fá úr því skorið hvort að lagaleg rök væru fyrir því að leyfa svokölluðu “skúffufyrirtæki” í Svíþjóð að fjárfesta í íslensku orkufyrirtæki. Athugun sérfræðingsins leiddi í ljós að um “sniðgöngu” væri að ræða og voru Evrópuréttarleg rök gegn fjárfestingunni lögð fyrir nefndina og formann hennar.

Meiri hluti nefndarinnar ákvað þrátt fyrir það að láta umrædd rök ekki hafa áhrifa á sjónarmið sín og sinna flokka, en það voru fulltrúar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fulltrúar BH og VG greiddu hins vegar atkvæði gegn því að leyfa fjárfestingu Magma hér á landiog skiluðu greinargerð áliti sínu til stuðnings.

Borgarahreyfingin mótmælir harðlega þeirri stefnubreytingu í orku- og auðlindamálum sem átt hefur sér stað bak við luktar dyr og án lýðræðislegrar umræðu. Samkvæmt henni gæti hvaða fyrirtæki sem er, hvaðan sem er og með hvaða ferilskrá sem er keypt nýtingarrétt að íslenskum orkuauðlindum og flutt arðinn úr landi. Hér hafa sérhagsmunir enn eina ferðina verið settir framar þjóðarhagsmunum og augljóst að Ísland gæti lent í félagsskap með fjölmörgum illa stöddum þjóðum sem misst hafa auðlindir sínar í hendur alþjóðlegra stórfyrirtækja með ömurlegum afleiðingum.

Lesa meira Borgarahreyfingin mótmælir stefnubreytingu í orku- og auðlindamálum bak við tjöldin án lýðræðislegrar umræðu

 

BH fordæmir aðgerðir lögreglu í opnum dómssal

Borgarahreyfingin fordæmir fullkomlega ástæðulausar og óréttmætar aðgerðir í opnum réttarsal Héraðsdóms í morgun. Fjölmennur hópur lögreglumanna var í dómshúsinu og réðist gegn almenningi á staðnum án nokkurrar ástæðu. Svo virðist sem ofbeldisleikrit hafi verið sett á svið í samráði við lögregluyfirvöld og vekur það spurningar um atburðina í alþingishúsinu sem ákæran snýst um.

Lesa meira BH fordæmir aðgerðir lögreglu í opnum dómssal