Starfsemin
Húsið er nýtt húsnæði Borgarahreyfingarnar sem tekið var í notkun þann 5.desember sl. að Höfðatúni 12 í Reykjavík. Húsið hýsir skrifstofu BH og er í heildina um 250 fm á stærð auk kjallara.
Um leið og þarna verða aðsetur BH mun Húsið verða notað til samfélagslegra verkefna á vegum einstaklinga og hópa þeim að kostnaðarlausu.
Von okkar er að í Húsinu verði hægt að búa til félagsaðstöðu ólíkra hópa og einstaklinga sem á einhvern hátt eru að vinna að einhverju uppbyggilegu fyrir samfélagið okkar í heild sinni.
Ef þig vantar aðstöðu, ert með hugmynd eða veist um einhverja sem vantar aðstöðu fyrir sín félagsstörf, iðju eða samfélagslegu verkefni skorum við á þig að vísa þeim í Húsið að Höfðatúni 12 !
Ef þið viljið panta pláss eða hafið fyrirspurnir varðandi aðstöðuna þá endilega hafið samband við Tryggva í síma 8648901 / 5111944 eða komið í heimsókn milli kl 13-17 að Höfðatúni 12 alla virka daga.
Látið boðskapinn berast!