Áskorun frá Borgarahreyfingunni
BH skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að setja nú þegar bráðabirgðalög til að fresta auðlindaframsali til Magma Energy Corp. í Kanada gegnum sölu á eignarhlut í HS-orku með milligöngu "skúffufyrirtækis" í Svíþjóð. Enn fremur fer BH fram á að öllum fjárfestingum einkaaðila í orkugeiranum verði skotið á frest uns lokið er endurskoðun á orkulöggjöfinni og laga um erlendar fjárfestingar.
Umræddur gjörningur sem klárlega gengur gegn markmiðum og anda íslenskra laga, jafnt sem laga ESB/EES, verður tæpast skilgreindur öðruvísi en "sniðganga". Nýleg dómaframkvæmd Evrópudómstólsins segir að einstök aðildarríki hafi vald til að stöðva misnotkun á evrópulögum sem gerð er til að sniðganga löggjöf viðkomandi ríkis, sérstaklega þegar almannahagur er í húfi. Orku- og auðlindaréttur fellur án nokkurns vafa undir þá skilgreiningu.
Stjórnlagaþingsverkefnið og myndbandsupptökur af fundinum 11.mars
Nú hefur Borgarahreyfingin og Húsið haldið tvo fundi um stjórnlagaþingsmál og þá hugmynd að almenningur fái sjálfur að semja sína eigin stjórnarskrá. Fyrri fundurinn var haldinn í Húsinu þann 11.mars og var opinn öllum (bæði félagsmönnum og öðrum). Seinni fundurinn var með öðru sniði og var haldinn í Iðnó föstudaginn 19.mars. Tilgangur þess fundar var að kynna hugmyndina út á við til ólíkra einstaklinga úr ólíkum stéttum. Báðir fundirnir hafa gengið mjög vel og hefur hugmyndin hlotið góðan hljómgrunn út á við.
Næsta skref var stigið sl. þriðjudag. Þá tók stjórn BH þá ákvörðun að ráða Sigurð Hr. Sigurðsson sem verkefnisstjóra yfir fyrsta stigi verkefnisins. Hlutverk hans verður að hrinda af stað því verkefni að landsmenn fái sjálfir að semja sína eigin stjórnarskrá.
Lesa meira Stjórnlagaþingsverkefnið og myndbandsupptökur af fundinum 11.mars
Stjórnarfundur 23.mars kl. 18
Stjórnarfundur BH þriðjudaginn 23.mars kl 18:00
Dagskrá:
Eru Alfa og Beta geislar orsök vandamála, samskiptaleysis og slæmrar heilsu okkar ?

Það eru merkilegir hlutir að gerast í Húsinu í þessari og næstu viku.
Andrés Zoran Ivanovic sérfræðingur og mikill áhugamaður um orkusvið í umhverfi okkar mun halda opna fyrirlestra á vegum Biokibernetica eftirfarandi daga:
Föstudaginn 19.mars kl. 20
Þriðjudaginn 23.mars kl. 20
Fimmtudaginn 25.mars kl. 20
Biokibernetika - það er ástæða fyrir öllu
Lesa meira Eru Alfa og Beta geislar orsök vandamála, samskiptaleysis og slæmrar heilsu okkar ?
Ísland Panorama í Húsið
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna það að samtökin Ísland Panorama hafa fengið viðvarandi skrifstofuaðstöðu í Húsinu að Höfðatúni 12. Grasrótarhópar hafa verið að vinna að fjölbreyttum verkefnum í Húsinu auk þess sem nokkur félagasamtök hafa haft þar fundaraðstöðu. Hins vegar eru samtökin Ísland Panorama fyrst grasrótarhópa til að nýta sér skrifstofupláss í Húsinu.
Ísland Panorama eru grasrótarsamtök sem standa vörð um fjölbreytni og vinna gegn mismunun. Þau hafa það að markmiði að beita sér í baráttunni gegn fordómum, útlendingafælni/hatri og hverskonar mismunun á grundvelli trúar, útlits eða uppruna. Til þess að ná settu marki hyggjast samtökin Ísland Panorama einbeita sér að því auka skilning og efla gagnkvæma virðingu milli fólks af ólíkum uppruna, sem búsett er á Íslandi. Samtökin eru opin öllum þeim sem hafa áhuga á málefninu og hafa löngun og vilja til að vinna að fyrrgreindum markmiðum. Samtökin eru óháð öllum stjórnmálaflokkum og stjórnmálastefnum. Þau hyggjast fjármagna starfsemina með því að leita eftir styrkjum jafnt frá einkaaðilum sem opinberum sjóðum.
Síða 6 af 17