Fyrsta sýning Gagnauga í kvöld kl 20 !

Við hvetjum fólk til að kíkja í Húsið að Höfðatúni 12 í kvöld kl 20. Þá mun fara fram fyrsta heimildamyndasýning Gagnauga, hóps áhugafólks um alþjóða- og þjóðfélagsmál.

Myndin sem sýnd verður í kvöld ber nafnið:
Architects of Control: Mass Control and the Future of Humanity

Myndin fjallar um þá þætti sem móta lífsviðhorf okkar og þær takmarkanir sem við óafvitandi setjum okkur. Vakin er athygli á hversu ginkeypt við erum fyrir hverskyns blekkingum og hvernig við festumst í veruleika sem neytendur í gerviveröld. Þessi mynd setur tilveru okkar í algjörlega nýtt samhengi, gerir okkur meðvituð um þær blekkingar sem leiða okkur í hversdagslegan þrældóm og vísar leiðina til sjálfseflingar og sjálfsvitundar.

Þeir sem sjá þessa mynd munu verða fyrir miklum áhrifum og verða almennt meðvitaðir um það hvernig við verðum fyrir áhrifum.

 

Heimildamyndasýningar Gagnauga

Gagnauga, hópur áhugafólks um alþjóða- og þjóðfélagsmál mun frá og með miðvikudagskvöldinu 10. febrúar bjóða upp á heimildamyndasýningar og verða sýndar myndir aðra hverja viku klukkan 20:00 í Húsinu, Höfðatúni 12.
 
Áhersla verður lögð á að sýna myndir sem vekja fólk til umhugsunar um sögu og samfélag, ögra og hrista aðeins í heimsmyndinni, kalla fram efasemdir um ríkjandi viðhorf og veruleika og kveikja áhuga og trú á betra og áhugaverðara lífi.
 
Eftirfarandi heimildamyndir hafa verið settar á dagskrá:
 
Miðvikudagur, 10. febrúar kl. 20:00
Architects of Control: Mass Control and the Future of Humanity

Lesa meira Heimildamyndasýningar Gagnauga

   

Bílalánamótmæli þriðjudag kl 12:15 !

Íslandsbanki KirkjusandiBorgarahreyfingin vill minna á eftirfarandi og hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta og taka þátt :

Bílalánamótmæli 9. febrúar 2010 Íslandsbanka Kirkjusandi.

Við söfnumst saman fyrir framan Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 þriðjdaginn 9.febrúar. Við mótmælum óréttlátum bílasamningum og flautum í 3 mínútur hið minnsta, þ.e.a.s. ef gagn-tilboði NÍ verður hafnað af Íslandsbanka.

Geta má þess að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, er að íhuga gagn-tilboð um úrbætur/leiðréttingar sem samtökin afhentu Íslandsbanka s.l. þriðjudag. Fyrirhugað er að hittast á þriðjudaginn kemur kl 12:15 við höfuðstöðvar Íslandsbanka Kirkjusandi en þar mun Birna væntanlega svara gagn-tilboði samtakana NÍ. Gagntilboðið innihélt höfuðstólslækkun stökkbreysts höfuðstóls aftur til ársins 2007 / 2008, (c.a 56% úrbætur/leiðréttingar vegna myntkörfulána).

Lesa meira Bílalánamótmæli þriðjudag kl 12:15 !

   

Stjórnarfundur 9.feb. kl.18

Stjórnarfundur BH þriðjudaginn 9.febrúar kl 18:00

Dagskrá:

• Breyting á stjórn.
• Tillaga að afgr. á miðamótmælum.
• Framtíðarhugmyndir Sigga Hr.- frh.
• Ráðstefna/Borgarafundir.
• Fundir framkvæmdastjórnar.
• Önnur mál.

Fundurinn hefst kl 18 !
Mætum tímanlega!

   

Góður fundur sl. fimmtudag

Síðastliðinn fimmtudag fór fram fjölmennur og góður fundur um banka og fjármálastofnanir í Húsinu að Höfðatúni 12.

Vilhjálmur Bjarnason og Sveinn Óskar Sigurðsson fluttu erindi og svöruðu spurningum að því loknu við góðar undirtektir fundargesta. Auk þeirra mættu fulltrúar þriggja hagsmunasamtaka lánþega á fundinn til þess að gera grein fyrir sinni baráttu og svara spurningum. Þau voru Guðmundur Andri Skúlason, Þórdís Sigurþórsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson. Auk þeirra mætti Friðrik Ó Friðriksson formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og svaraði spurningum fundargesta.

Lesa meira Góður fundur sl. fimmtudag

   

Síða 5 af 12

Dagskrá Hússins

mars 2010
s m þ m f f l
28 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 1 2 3