Borgarahreyfingin minnir á bílalánamótmælin í hádeginu á þriðjudögum. Hér er tilkynning Nýs Íslands:
Bílalána mótmæli 23. febrúar (þriðjudag), 2010 Íslandsbanka Kirkjusandi.
Við söfnumst saman fyrir framan Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 þriðjdag 23. febrúar. Við mótmælum óréttlátum bílasamningum og flautum í 3 mínútur hið minnsta, þ.e.a.s. ef gagn-tilboði NÍ verður hafnað af Íslandsbanka.
Aðeins verður mótmælt hjá Íslandsbanka, þriðjudag 23. febrúar.
Gagnauga, hópur áhugafólks um alþjóða og þjóðfélagsmál mun standa fyrir sinni annarri heimildamyndasýningu í Húsinu að Höfðatúni 12, miðvikudaginn 24.febrúar kl 20. Um er að ræða heimildamyndasýningar aðra hverja viku og byrjuðu sýningar miðvikudaginn 10 febrúar með góðri þátttöku og virkilega fróðlegri mynd.