Opinn fundur í næstu viku

Það er okkur í Borgarahreyfingunni sannur heiður að tilkynna það að á fimmtudaginn í næstu viku (11.mars) mun fara fram opinn fundur um stjórnlagaþing í Húsinu að Höfðatúni 12.

Þarna verður á ferðinni fundur með svipuðu sniði og haldinn var um lánamál og fjármálastofnanir þann 4.feb. sl. nema hvað, að nú verður stjórnlagaþingið tekið til umræðu.

Dagskrá fundarins er ekki komin á hreint en mun verða send á félagsmenn og auglýst á heimasíðunni þegar nær dregur.

Tökum því fimmtudaginn 11.mars frá og mætum á fróðlegan og upplýsandi fund um hið afar krefjandi lýðræðismál sem stjórnlagaþingið er.

Fundurinn mun hefjast kl 20.
 

 

Frekari upplýsingar frá samstöðuþinginu.

Á laugardaginn fór fram mjög vel heppnað upplýsinga og samstöðuþing í Iðnó sem gaf frá sér ályktun sem birtist hér á síðunni í gær og má nálgast HÉR.

Á þinginu voru flutt mjög brýn erindi ólíkra aðila sem svo sannarlega áttu erindi við fleiri en gesti þingsins. Guðmundur Andri Skúlason, talsmaður Samtaka lánþega var í viðtali við morgunútvarp Bylgjunnar, "Í bítið" í gærmorgun þar sem hann fór yfir efni þingsins og aðgerðir sem mögulegar væru fyrir lánþega sem ættu í greiðsluerfiðleikum.

Fyrir áhugasama má nálgast viðtalið HÉR en það byrjar eftir 56 mín og 55 sekúndur af upptökunni. 

   

Kirkjusandur kl 12:15 í dag !

Borgarahreyfingin minnir á það að nú er runninn upp þriðjudagur, sem þýðir bara eitt :

Boðað er til bílalánamótmæla fyrir utan Íslandsbanka við Kirkjusand kl 12:15 í dag, þriðjudag.

Í ljósi þess að úrræði þau sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taldi að gæti gengið til heimila landsmanna og bankinn hundsi, segjum við hér með Birnu Einarsdóttir bankastjóra upp störfum fyrir hönd Nýja Íslands. Uppsagnarbréfið verður afhent við Kirkjusand kl 12:15 í dag, þriðjudag.
 

   

Ályktun upplýsinga og samstöðuþings

Upplýsinga og samstöðuþing var haldið í Iðnó sl. laugardag og voru undirtektar mjög góðar. Þingið gaf frá sér eftirfarandi ályktun sem send verður á helstu fjölmiðla og stjórnvöld:

Upplýsinga- og samstöðuþing, haldið í Iðnó 27. febrúar 2010, hvetur viðskiptavini lánastofnana til að kynna sér réttindi sín. Mikil óvissa ríkir um réttmæti þeirra krafna sem hafa verið settar fram á hendur skuldugum einstaklingum eftir efnahagshrunið. Lánastofnanir hafa túlkað ýmsa lánasamninga sér í hag, einkum er varðar svokölluð gengistryggð lán. Þannig hafa lán verið hækkuð án þess að sýnt hafi verið fram á með óyggjandi hætti að það sé heimilt. Má nefna sem dæmi skuldabréf þar sem lánþegi fellst á greiða til baka jafnvirði tiltekinnar krónutölu. Jafnvirðið er því bundið við íslenska krónu en lánastofnanir hafa reynt að tengja það við erlenda gjaldmiðla, sem aftur leiðir til þess að skuld lánþegans margfaldast. Ef lánastofnanir ætla að halda þessari túlkun sinni til streitu er rétt að þær fái hana sannreynda fyrir dómstólum. Á meðan það hefur ekki gerst eiga lántakendur að njóta vafans.

Lesa meira Ályktun upplýsinga og samstöðuþings

   

Skráning í fullum gangi !

   

Síða 2 af 12

Dagskrá Hússins

mars 2010
s m þ m f f l
28 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 1 2 3