Húsreglur í húsnæði Borgarahreyfingarinnar, Höfðatúni 12.
 
 
Almennt
 

 Borgarahreyfingin veitir endurgjaldslausan aðgang að húsnæði sínu með þeim einu skilyrðum sem fram koma í húsreglum þessum. Verði eftirtaldar reglur brotnar sér húsráðandi sig tilneyddan til að vísa tilteknum hóp/einstaklingi úr húsnæðinu tafarlaust.

 
 
Skráning – leyfi
 

Hópar og einstaklingar panta tíma í húsinu í samráði við framkvæmdastjóra BH í síma 511-1944 eða 864-8901.

 

Fyrir hverjum hóp sem fær aðstöðu þarf einn að gangast í ábyrgð. Sá aðili fær lykil (einn lykil á hóp) af húsinu og ber ábyrgð á því að skila því eins og komið var að því í hvert og eitt skipti. Sá aðili ber einnig ábyrgð á því að húsinu sé læst,  slökkt sé á ljósum, rafmagnstækjum og að þjófavörnin sé ræst (ef það á við) í lok hvers dags.

 
 
Notkun á rými og búnaði BH.
 

Allar hugmyndir um sölustarfsemi í húsinu verða að fara fyrir stjórn BH þar sem hvert mál er tekið til skoðunar.

 

Hver einstaklingur/hópur ber fulla ábyrgð á eigin búnaði sem hann/Þeir kjósa að nota eða hafa í húsinu.

 

Kjósi einhver að fá lánaðan búnað í eigu BH til notkunar utan húss verður að kvitta fyrir lán á slíkum búnaði bæði við afhendingu og skil. Hér á það sama við og um lyklavöld að húsinu, einn aðili ber alla ábyrgð.

 

Notkun á síma BH (landlínu) er leyfð innan skynsamlegra marka. Lokað er fyrir símtöl í GSM síma.

 

Reykingar eru bannaðar í húsnæðinu.

 
 
Umgengni
 

Húsið er miðstöð okkar allra og þó svo að Borgarahreyfingin leggi til aðstöðuna þá er það á ábyrgð allra þeirra sem um það ganga að sjá til þess að það sé hreint og snyrtilegt. Eftir fundi (eða annað) skal gengið frá og passað upp á að næsti hópur/einstaklingur taki við hreinni og snyrtilegri aðstöðu

 

Hreingerning á salerni, eldhús og á almennu plássi er á sameiginlegri ábyrgð þeirra sem nota húsið. Eina „gjaldið“ sem Borgarahreyfingin tekur fyrir að fá að nota aðstöðuna er snyrtileg umgengni og aðstoð við að ræsta húsið.

 

Taka skal tillit til þess að margir nota húsnæðið og því berum við að sýna hvort öðru tilhlýðilega virðingu og tilllitssemi.