Vafasamur undirskriftalisti InDefence

Í gær þá sá ég á bloggi Bjarka Hilmarssonar skjámynd af síðustu 100 undirskriftum á lista um áskorun til foreseta Íslands. Þar mátti sjá Jóhönnu Sigurðardóttur skrá sig nokkrum sinnum, Davíð Oddson í mismunandi útgáfum og m.a.s. Albert Einstein reis upp frá dauðum til að kvitta undir, frekar afstætt það. Ekki gat poppgoðið Michael Jacksons heldur stillt sig um að koma úr felum í Austur-Evrópu þar sem hann ku dvelja eftir að hafa sett dauða sinn á svið.

Þó mörgum finnist þetta skrítið og draga kannski úr trúverðugleika söfnun undirskriftanna, þá er þetta eðlilegur fylgikvilli að ýmsir skrítnir aðilar birtist í svona netundirskriftum. Vanalega er þetta örlítið, lítið mál að henda burtu Gordon Brown og slíkum,  og með samkeyrslu við Þjóðskrá er hægt að hreinsa þetta út frá kennitölu, sérstaklega þar sem ekkert mál var að setja þarna inn bullkennitölur.

Þó maður hafi örlítið lyft brúnum yfir þessu og sumir fleiri bent á þetta í bloggfærslum, þá bjóst maður engan veginn ekki við að nokkur myndi gera blaðamál úr þessu….nema að ég gleymdi tvennu: Morgunblaðinu þar sem Hádegis-Móri ríður röftum og þrýstihóp Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem stendur fyrir söfnun undirskrifta og InDefence kalast.  Faðir þeirra í spunanum og smjörklípunum sá greinilega að þarna var hægt að koma höggi á marga með léttadrengjum sínum í InDefence og frétt var galdrað fram með hjálp spunatalsmanns með tilheyrandi höggum á alla óvini Móra: ríkistjórnin, RÚV, og Vísir. Reyndar gleymdi Móri DV og höfuðstöðvum Baugs en kippti með Hagstofunni þar sem ákveðin gremja var í gangi innan náhirðar hans um að Hagstofan vildi ekki skrá átrúnað á Davíð Oddson, hins íslenska Krists á krossinum, sem viðurkennd trúarbrögð.

Stuttu síðar var hún að sjálfsögðu komin á Snjáldurskrudduna hjá nokkrum hörðum Ísbjargar-óvinum sem berjast fyrir flokk og Hreyfingu, árangri spunans semsagt náð, tilkynningar um að Jóhanna og Steingrímur séu að falsa undirskriftir til að koma í veg fyrir að InDefence vinni stríðið fyrir Hádegis-Móra, Engeyjardrenginn sem er vandræðalega flæktur í Vafning íblönduðum með vafasömum skattaútreikningum og Bakkabróðirinn sem fór á sjömílna sauðskinnsskóm í fræga fýluför til Noregs.

Þessi spuni fór aðeins í mig og pirraði, nokkuð sem fékk mig til að ákveða:”OK, best að skoða þenann undirskriftalista og gera áreiðanleikatékk.”. Ég smellti því mér á síðuna hjá þeim og ákvað að kalla mig Guð svona þar sem ég hef nýlega skilið við hann eftir langa og erfiða sambúð þar sem við töluðum ekkert við hvorn annan, hvað þá vildum af hvor öðrum vita. Við bætti ég bullkennitölu en skildi eftir dálk um netfang auðan.

Eftir músarsmell þá kom svarið. InDefence-undirskriftalistinn neitaði að taka mig gildan, heimtaði föðurnafn svo ég bætti við Jósefsson til heiðurs frægum syni hans sem heillaði skrílinn jafnmikið og Presley, Michael Jackson og Bó Halldórs til samans. Við það tók listinn við sér, föðurnafn eitt nægði til staðfestingar. Þar brást áreiðanleikapróf listans í mínum augum, það var nefnilega ekki krafist staðfestingar í gegnum netfang líkt og á mörgum listum erlendis.

Og það vekur upp margar spurningar með listann og áreiðanleika hans: hvernig veistu hvort réttur maður hafi skráð sig á listann? Hvernig veistu hvort einhver hafi ekki farið og skráð vini sína, vandamenn og aðra á listann?Hvar er staðfesting á því að réttur maður sé þarna á bak við, eitthvað sem hægt er að rekja?

Þó meirihluti allra þarna séu að gera þetta á sínum forsendum, þá vegna þess að undirskriftin er ekki staðfest á neinn hátt, gerir þetta að frekar veikburða og vafasömum undirskriftalista í mínum augum(óháð skoðunum) og ég játa að mér er um og ó, ef einhver skyldi nú hafa skráð mig á þennan lista því ekki vill ég tilheyra honum, bæði vegna þess að mér finnst þetta fyrst og fremst verið að þessu í pólitísku lýðskrumi fyrir hrunflokkana tvo í stjórnarandstöðu. Hinsvegar svo er ég á þeirri skoðun að þetta sé ekki mál til að kjósa um því það þarf að leysa það núna srax, en ekki láta hanga yfir okkur til eilífðarnóns án lausnar, niðurstaða sem ég komst niður á eftir mikla íhugun. Ekki bætir úr skák að ég er lítið hrifinn af InDefence-þrýstihópnum, málflutningi þeirra og upphrópunum sem þeir geta ekki staðið almennilega fyrir í rökræðum, líkt og Baldur McQueen benti nýlega á.

Eitt er víst, þó að yndislega, breyska teiknimyndahetjan mín, hann Andrés Önd, hafi skráð sig á móti IceSave, þá mun ég ekki gera það og krefst þess að ef nafn mitt sé á þessum lista án samþykkis míns, að það verði fjarlægt.

Ég er nefnilega raunveruleg persóna ólkt mörgum þarna!