Ó Guðs vænissjúka þjóð
Ég er fífl, ég er fáviti, ég er asni og ég er bjáni sem ber hausnum taktfast í tölvuna, hlæjandi innra með mér að mér og fjölda fólks.
Hversvegna? Nú í gær höfðu örfáar bloggfærslur sést um bullundirskriftir hjá InDefence þar sem skotið var á það. Hádegis-Móri brást til varnar sínu fólki í InDefence og vippaði út frétt með hraði þar sem strákarnir hans gerðu sér mat úr því að bullundirskrift hefði komið frá Stjórnarráðinu sem eru öll ráðuneytin 12 þar sem einhver hundruðir manna og kvenna, ef ekki yfir þúsund starfa. Vísir, RÚV og Hagstofan lágu einnig undir grun um að taka þátt í risastóru samsæri ríkistjórnarinnar og stjórnarflokkanna um að gera undirskriftalistann ótrúverðugan þó það væri frekar annað sem gerði þennan lista óáreiðanlegri en ella að mínu mati, að mati fólks sem missti sig á netinu.
Ég tók hinn pólinn í hæðina, taldi að InDefence hefði nú tekið þessa aðila sérstaklega fram í pólitískum skolalleik sínum fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn(og geri það enn í vænissýki minni) og fjandinn varð laus: ég og félagi minn misstum það gegn hvor öðrum og örugglega fleiri gegn sínum vinum, og á þriðja tug hneykslunarblogga(með tilheyrandi fjölda athugasemda) auk eins meira viturlegra frá Stefáni Pálssyni þar sem hann bendir á fáránleikann í þessu “samsæri”, með upphrópunum á borð við:
“Vinstri stjórnvöld á villigötum öfgaaðferða, þarf ríkisstjórnin að segja af sér?”
“Þetta er svo grafalvarlegt mál að þetta kallar á opinbera rannsókn.
Og ÞAÐ ÁN TAFAR! Þingmenn stjórnarandstöðu hljóta að
taka málið upp strax á næsta þingfundi, og InDefenc
hópurinn hlýtur að kæra málið til lögreglu.”
“Er aðgerðalausa vinstristjórnin alveg að missa sig? Þetta er aðför hennar að lýðræðinu í landinu. Sovétstjórnin gerir hvað sem er til að neyða okkur til að borga útrásarsukkið.”
“Skemmdarverk skipulögð í stjórnarráðinu!”
Að sjálfsögðu birtist í framhaldi frétt með tilheyrandi uppistandi á Eyjunni
Á Eyjunni kom þó fram eftirfarandi athugasemd frá aðstandenda InDefence sem setti “samsærið” í nýtt ljós:
“Það er ekki þannig að allar bull skráningar komu frá stjórnarráðinu, en við fylgjumst vel með öllu og það er búið að eyða ca. 200 bull undirskriftum. Eins og Ólafur segir í fréttinni, þá mun óháður aðili fara yfir kennitölur og nöfn (munum nota t.d. þjóðskrá).
Frá stjr.is var eftirfarandi nafn skráð: “Bogus kennitala” + einhver ógild kennitala.
Annað dæmi er skráning nr. 33170 í dag kl 14:52:
Nafn: Etaoin Shrudlu
Kennitala: 0000000000
IP: 81.15.15.1
Host: notendur.stjr.is”
200 bullundirskriftir? 2 tilteknar frá Stjórnarráðinu? Og svo blaðamaður Vísis sem meldir sig inn í umræðuna þarna á Eyjunni og lætur vita að hann hafi skrifað undir með bulli til að sannreyna hvort það væri áreiðanleiki á bak við staðhæfinguna með bullundirskriftir.
Þetta er rosalegasta samsæri sem maður hefur séð. Ríkistjórnin, þingflokkarnir og aðstoðarmenn þeirra ásamt þessum tveimur flokkum ná að hamra inn 200 undirskriftum á nokkrum dögum og eru það heimsk að nota Andrés Önd og Michael Jackson sem dulnefni þegar allir vita að Jackson er í felum í Austur-Evrópu og Andrés býr í Andabæ milli þess sem hann dvelur í Fjarskanistan. Við verðum að heimta opnibera rannsókn STRAX!!!! Jóhanna og Steingrímur hljóta að standa á bak við þessum TVEIMUR undirskriftum frá STJÓRNARRÁÐINU!
Er ekki fólk að missa sig aðeins í vænissýki í bland við jólastressið? Svona nú, kæra þjóð, draga djúpt andann og hugsa, það er meiri hætta sem liggur í væntanlegri Jólahryllingslest Kóka Kóla og jólasveini þeirra sem sem ætlar að keyra lestina inn í þinghúsið og sprengja það upp vegna þess að einhver drakk þar Pepsi Max.
Í alvörunni ef IceSave-umræðan er að fara svona með geðheilsu fólks og þjóðar sem skítrhædd og óttasleginn sér óvin í hverju horni, þá er komin tími á að klára þetta mál og koma því fram. Held að þjóðinni veiti ekki af fríi frá þessu helvíti, vænissýkinni og geðsveiflunum sem þessu máli fylgja og ekki er það gott í bland við jólastressið þar sem sumir kvíða hátiðunum og sjá svartnættið framundan. Fjandinn hafi það, ef svona heldur áfram neyðumst við til að breyta þjóðsöngnum ofurhátíðlega yfir í “Ó Guðs vænissjúka þjóð” með tilheyrandi lýsingum á henni í textanum.
Hvað mig varðar, hversvegna ég er fífl og allt það, þá er svarið einfalt. Ég féll enn eina ferðina inn í skotgrafirnar sem sundrungargyðjan Ísbjörg ýtir fólki út í, ég lét blekkjast til að taka þátt í þessu rugli og skrifa tvær heilar bloggfærslur um þetta “stórmál”.
Ég er fífl, ég er fáviti, ég er asnii og ég er bjáni sem hlæ að heimskunni í sjálfum mér.