Tími kominn á nýja stjórnarskrá
Enn eina ferðina setur það strik í reikninginn hvað stjórnarskráin okkar er ófullkomin og úr sér gengin. Lögspekingar hafa verið ósammála um það hvort fyrirliggjandi samningar við Breta og Hollendinga brjóti í bága við ákvæði hennar eða ekki. Sökum þess hve margar greinar hennar standast illa tímans tönn er orðin löng hefð fyrir því að túlka hana frjálslega og jafnvel á allt annan veg en orðanna hljóðan segir til um.
507 % hækkun heildarendurgreiðslu*
Frjálsi fjárfestingabankinn kynnir með stolti svokallað “Greiðsluskjól” á heimasíðu sinni. Greiðsluskjól sem þeir kalla “skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar.”
En er það akkurat svo?
Undirskriftasöfnun + Icesave
Hvað ætli það séu margir sem hafa í raun og veru skráð sig á undirskriftalista indefence hópsins? ástæðan fyrir þessari spurningu er að fólk virðist stunda það að skrá aðila úti í bæ á síðuna, sem gefur villandi upplýsingar og gerir málstað hópsins ótrúverðugri. Slæmt fyrir alla aðila s.s. þetta er dæmi um þetta: Skjámynd
Skotgrafir og íslensk umræðulist
Núna í dag hafa verið að rifjast upp ýmsar sögur í kollinum á mér, sprottnar út frá pistlum tveggja ágætra manna: Teits Atlasonar og Ómars Ragnarssonar, sem fjalla um skotgrafarökræður Íslendinga sem ganga út á það að ef þú ert ekki sammála þá hlýtur þú að vera í liði með óvinunum, nokkuð sem fær mann til að velta hvort hægt sé að rekja ættir George W. Bush jr. til einhvers afdalabæjar hér á landi eða jafnvel Keflavíkur.
Feiri greinar...
Síða 2 af 4