Vald minnihlutans

   Við hrun bankakerfisins í fyrravetur og fyrir kosningarnar vorið 2009 kom fram hávær krafa meðal almennings er snéri að persónukjöri í kosningum.  Frambjóðendur og flokkar sáu sér leik á borði og lofuðu kjósendum raunverulegum áhrifum um það hvaða einstaklingar sætu í sveitastjórnum og á hinu himinháa Alþingi. Frumvörp um persónukjör komu fram en ollu hörðustu lýðræðissinnum vonbrigðum þótt skrefin væru vissulega í rétta átt. Nafnbótin „persónu“kjör á samt engan veginn við þau frumvörp sem nú liggja ofan í læstum skúffum  Alþingis því raunveruleg áhrif á það hvaða fólk þú vilt sjá fyrir þína hönd í sveitastjórnum eða á Alþingi eru ekki fyrir hendi.

Lesa meira Vald minnihlutans

 

Um "SIGUR" lýðræðisins.

Ýmsir segja að lýðræðið hafi unnið sigur í dag.  Það má vel vera, en ansi er ég hræddur um að þessi sigur verði okkur dýrkeyptur.  Ef bretar og hollendingar vilja t.d. ekki lána okkur þessa aura verður ansi erfitt fyrir okkur að standa við þessa skuldbindingu sem varð að lögum í sumar.  Sum stríð er hægt að vinna en fórnirnar sem þarf að færa eru það miklar að sigurinn verður innantómur.  Þetta verður að fá að hafa sinn gang.

Lesa meira Um "SIGUR" lýðræðisins.

 

Björgólfur og tónlistarhúsið Harpa…hans

Með reglulegu millibil þá blöskrar manni firringin og dekurdansinn sem átti sér stað í kringum auðmenn þessa lands sem virtust fá öllu sínu framgengt.

Um einn slíkan var upplýst í gær hjá RÚV þegar rýnt var í tónlistarhúsið sem Harpa kallst nú. Þar hafði átt að útbúa sérstök VIP-herbergi fyrir hópa og fyrirtæki til að leigja fyrir fundi eða veislur. Gott og vel ekkert að því svo sem enda örugglega ágæt tekjulind til að borga þetta glæsilega tónlistarhús þjóðarinnar….takið eftir, ÞJÓÐARINNAR.

Lesa meira Björgólfur og tónlistarhúsið Harpa…hans

   

Glæpur og refsing.

Nú hafa einhverjir strákar úr gamla Kaupþingi verið dæmdir í 8 mánaða fangelsi.

Glæpir þeirra voru þó frekar lítilfjörlegir miðað við þá sem komu þjóðinni á hausinn.

Lesa meira Glæpur og refsing.

 

Ó Guðs vænissjúka þjóð

Ég er fífl, ég er fáviti, ég er asni og ég er bjáni sem ber hausnum taktfast í tölvuna, hlæjandi innra með mér að mér og fjölda fólks.

Hversvegna? Nú í gær höfðu örfáar bloggfærslur sést um bullundirskriftir hjá InDefence þar sem skotið var á það. Hádegis-Móri brást til varnar sínu fólki í InDefence og vippaði út frétt með hraði þar sem strákarnir hans gerðu sér mat úr því að bullundirskrift hefði komið frá Stjórnarráðinu sem eru öll ráðuneytin 12 þar sem einhver hundruðir manna og

Lesa meira Ó Guðs vænissjúka þjóð

   

Síða 1 af 4